Mig langar að benda þér á eitt, alveg sama hvaða farartæki þú keyrir.
Ég keyri hægfara ökutæki. Það er jú stórt.
Ég keyri þungt ökutæki. Það er hlaðið vörum sem þú bíður eftir.
Ég hugsa ekki bara um mig í umferðinni, ég hugsa líka um þig. Ég þarf helst að vera búinn að plana hvað þú ætlar að gera næst.
Mér finnst þú ekki vera réttlátur þegar þú hnussar yfir því að ég skuli vera fyrir. Það er ekki eins og bílastæði séu sérhönnuð fyrir stóra bíla.
Mér finnst ekki fallagt af þér að vera ókurteis við mig þó ég komi of seint, það eru ástæður fyrir öllu. Kannski var sá sem var á undan mér staddur í óveðri og djöfulgangi á meðan þú sast heima og horfðir á sjónvarpið.
Mér finnst að þú ættir að brosa ögn meira þegar ég kem á svæðið, það kostar ekkert. Er ekki tilefni til að gleðjast þegar varan er kominn á áfangastað ?
Spáirðu einhverntíma í því að maðurinn sem keyrir einmitt flutningabílinn á undan þér sem þú ert að bölva sé einmitt sá sem er að flytja vöruna sem þú ætlast til að sé til í búðinni á morgun, hugsa ekki
Mér fyndist allt í lagi að mér væri synd smá tillitsemi og kurteisi í umferðinni,
Mér finnst að þú ættir að hugsa þig 2x um áður en þú sótbölvar og sendir hnefann já eða jafnvel fingurinn í áttina að flutningabílnum að kannski er hann einmitt með eitthvað sem þig vantar á eftir/morgun.
Mér finnst að þú ættir að hugsa að sá sem flutti einmitt það sem þig vantaði mátti kannski fórna extra hvíld eða sat fastur í óveðri á einhverri ótuktarheiðinni sem er ekki rudd nema í dagsbirtu….
Mér finnst að ég meigi væla líka eins og mótorhjólamaðurinn sem endalaust vælir undan öðrum bílum og sakar allt og alla um ósanngirni í sinn garð.
Þessa daganna er mikið kvartað undan rasisma í fótboltageiranum og víðar, menn eru ákærðir fyrir að kalla hvorn annan ýmist negra eða eitthvað álíka, En hvað með okkur sem sitjum í yfirviktarþyngdarflokkinum sem verðum fyrir stöðugum aðdróttunum ???? Gæti það ekki flokkast jafn mikið undir samskonar ofbeldi eins og að segja svörtum manni að hann sé svartur (eða negri, sama orð) er þá ekki verið að ráðast á mína persónu eða ??? Hvar liggja mörkin eiginlega í þessu, vaxtaræktarfólk ræðst á mann með skít og skömm af því að maður er með smá vömb, sumir ganga meira að segja lengra í þessu og gefa skít í afkvæmi sín af því að “ræktin” gengur fyrir og uppeldi er ekki á stefnuskrá…….
Á maður að hlaupa upp til handa og fóta af því að einhver bendir á hið augljósa ???
Annars veit ég ekki sko, þetta eru bara smá pælingar um hvað sé ljótt og hvað ekki…….
Mikið hefur verið rætt um einelti síðastlina viku eða vikur í ljósi atburðanna í Sandgerði og virðist alltaf þurfa svona dramatíska hluti til að fólk opni augun gagnvart eineltinu sem viðgengst fyrir framan nefið á okkur á ýmsan máta, og langar mig ögn að tala um það.
Þegar ég var í barnaskóla fyrir örugglega 100 árum síðan ef börnin mín eru spurð þá viðgekkst þessi fjandi alveg látlaust og ofter en ekki þá varð ég fyrir einelti/ofbeldi á einhvern máta, ég var td bara berbúi og þar af leiðandi ekki hæfur til að umgangast hvern sem er í skólanum, og btw það var eftir foreldrum haft á þeim tíma. Ég td átti ekki réttu fötin rétta reiðhjólið og eða hreinlega réttu foreldrana ef því var að skipta.
Oftar en ekki þá var ég með kvíðahnút í maga við að fara í skólan og gerði mér upp allskyns vekindi hreinlega til að sleppa því, stundum tókst það og stundum ekki, þegar það tókst ekki þá þóttist ég bara fara í skólan en sat undir gömlu löggustöðinni í helli allan daginn og hafðist við þar með nestið mitt, og kom svo heim úr “skólanum” eins og ekkert væri og engin tók eftir neinu, í viku þá loksins náði einhver kennari tali af Mömmu og spurði hversu lengi ég yrði frá, þið getið rétt ýmindað ykkur svipinn á gömlu…………
Nú ekki var nú mikið tekið mark á mér og því sem ég reyndi að segja og var ég þá skikkaður til sálfræðings í skólanum sem var sú alskrítnasta mannvera sem ég komst í tæri við á þeim tíma, og tókst næstum að sannfæra mig um að vandin væri ekki umhverfið þeas þetta var rangt hjá mér að krakkarnir eltu mig grýttu mig hræktu á mig og kölluðu mig öllum mögulegu illum nöfnum, vandamálið væri ég, afþví að ég 6-7 ára var ekki búinn að tækla sorgina eftir föðurmissinn og þetta væri ég að kalla eftir hjálp með að LJÚGA uppá aðra, ég laug td það vel að oftar en ekki þá hljóp ég inná löggustöð með hóp af krökkum á eftir mér sem btw tjáðu lögreglunni að þau væru bara að “hræða” mig, ætluðu ekkert að meiða mig neitt og mér ýmindunarveika barninu með athyglisþörfina var bara ýtt út, já btw ég átti ekki réttu ættingjana heldur sem td unnu við lögreglustörf.
Og þetta skánaði ekkert með aldrinum, barnaskólinn var ekkert verstur, því svo kom jú gagnfræðaskólinn og gelgjurnar eftir því. Þá fóru stelpurnar að mála sig, strákarnir fengu skeggbrodda og punghár og svo framvegis, maður hraktist út í reykingar og allt sem því fylgir og alltaf í röngum hóp, því maður var ekki af réttu fólki kominn, maður átti ekki “ríka” foreldra eða maður var ekki í neinum íþróttum að ráði, Unglingsárinn urðu ekkert léttari að eiga við, eineltið varð öðruvísi grófara einhvernveginn, meiri barsmíðar og ljótari orð, unglingar eru jú meðvitaðri um hvernig særa má mest með hnefa og eða orðum. Í hvert sinn sem reynt var að ræða þessa hluti þá var svar foreldrana “Mitt barn gerir ekki svona” enda maður annálaður lygari fyrir vikið sko, Ég veit heldur ekki hvort ég get fríað mig frá einhverjum atburðum þar sem ég tók þátt maður reyndi náttúrulega eftir bestu getu að taka þátt, þó svo maður væri að gera rangt.
Núna mörgum árum seinna og fullt af börnum seinna þá hugsa ég voðalega mikið um þetta og hef reynt að miðla af minni nöturri reynsli til minna barna og reynt að benda á að þegar þau hafa lent í svipuðum aðstæðum hvernig þeim leið sem fórnarlambi, það hjálpar aðeins…… Mér finnst samt foreldrar of meðvirknir í þessu einelti og hreinlega taka þátt, nei ég er ekki að segja að þau standi út á götu og geri, heldur þá hlægja þau meira þegar börnin eru “fyndinn” á annars barns kostnað og þá mest heima við, þegar engin sér….. en samt vita allir…..
Ég veit ekki hvort þessi ræða mín eða það sem ég hef ritað hér komist til skila eða að nokkur skilji hana, enda bara feitur elgur að babla eitthvað út í loftið……..
Þessa stundina gengur það um facebook eins og íllkynja krabbamein að mótorhjólafólk sé hitt og sé þetta og séu bræður afar ömmur systur and so on og eigi sko fullan tilverurétt í umferðinni borgi skatta og borgi gjöld.
Gott og blessað það, en ég spyr á móti, gilda ekki sömu umferðarlög fyrir mótorhjólamann eins og þann sem ekur bifreið, ef þú ekur mótorhjóli máttu þá taka framúr á heilli línu við hlið ökutækja sem eru annars að bíða ??? Máttu ef þú ekur mótorhjóli keyra á milli bíla sem bíða á rauðu ljósi og þrengja þér fremst í röðina ???? Máttu ef þú ekur mótorhjóli þeysa framúr bifreið sem ekur á 90 km hraða á afturdekkinu einu saman ???? Sama spyr ég reiðhjólamannin sem hjólar út á götu, mátt þú fara framúr öllum bílunum sem bíða á rauðu ljósi og lulla þér svo yfir ???? Mátt þú reiðhjólamaður fara hægra megin fram úr bíl sem er að fara í hringtorg innri hring á leið út og verða dýrvitlaus yfir ökumanni BÍLSINS að virða þig ekki ???
Ég allavega lærði umferðareglurnar ekki á þennan veg, núna eru kominn nokkur ár síðan ég tók bílpróf *reikn* 26 held ég ef ég kann að telja og mikið andskotinn hefur breyst mikið á þeim tíma.
Þetta er allt saman afar undarlegt…. og auðvitað á maður að horfa 2x til hliðar já og jafnvel oftar því þú sérð ekki mótorhjólið sem kemur á þriðja hundraðinu í fyrstu annari eða jafnveð þriðju tilraun.
Agalega hef ég nú gaman að spá í hvað fólk er að segja á þessum veraldarvef sem kallaður er facebook, og hvað sé “leyfilegt” að segja á vegg hjá fólki og ekki, eða hvað sæmir fullorðnu fólki að segja og ekki.
Td sæmir það ekki að spyrja fólk um hvort það ætli ekki að skila því sem fengið er læánað, svoleiðis lagað á víst heima í “einkaskilaboðum” persónulega finnst mér það engu skipta.
Td Þá sæmir það fullorðnu fólki aftur á móti að ræða kynfæri sína og annara á opnum vegg, þeas í stærðarhlutföllum and so on, Þar aftur á móti finnst mér fólk eigi að nota “einkaskilaboð”
Ekki alls fyrir löngu þá einmitt fékk ég romsu þess eðlis að það sæmi ekki fullorðnu fólki að inna eftir eigum sínum á vegg hjá fólki og vissi ég ekki að það væri “bannað” ég svo sem hef ekkert verið að fara neitt í felur með svona hluti og eða eyða tíma endilega í “einkaskilaboð” enda ekkert privat sem um er rætt, það er ekki eins og ég sé að ræða privat hluti eins og að dúndra konuna mína eða hún sé að tala um að p**an á henni sé full (ég á meira að segja erfitt með að skrifa þetta) eftir mig eða annað verra, mér fyndist það eitthvað svona meira sem ætti heima í “einkaskilaboðum” svona með tilliti til þess að td ég á börn sjálfur sem lesa hvað ég er að segja, og skyldmenni mín eiga börn sem hugsanlega lesa það sem ég segji og ekki vilja þau nú beint lesa svona held ég nú.
En að öllu gamni slepptu þá er bara gott að vera til, allir hér sáttir við lífið og tilveruna, fer að fá fastráðningu Sæunn er búin að fá sína, börnin æða áfram í skólagöngu og svo framvegis…. Ég kannski fer að nota bloggið bara meira þar sem ég ræð hvað ég segji hverju sinni
Ég hef ekki alltaf fallið undir beittasta hnífinn í skúffunni sko, en það er bara allt í lagi held ég
Ég er bara sá sem ég er og fæddist og er ekkert öðruvísi neitt hvað það varðar, sumum finnst ég vera leiðinlegur, sumum finnst ég vera hrokagikkur, sumum finnst ég vera með yfirgang og frekju, besta er, mér er næstum því alveg sama, fólk virðist verða reitt út í mig án minnstu tilefna og yrða svo ekki á mig í vikur mánuði eða ár eftir á, sökum þess að það er svo reitt út í mig….. mér gæti ekki verið meira slétt sama, og ef ég segi eitthvað til baka, þá er sögnin næstum sú sama “en ég er bara svona sættu þig við það”
Ég ætla að taka mér frí um stundarsakir af facebook, allavega þangað til Liverpool vinnur þó leik eða kemst úr botnsætinu, ég greinilega hef ekki sterkari taugar en það að pressan fer með mig alveg á þessum endalausum skotum á liðið og áhangendur þess. Sjálfur hef ég svo sem ekkert verið neitt óspar á skot á suma og biðst ég afsökunnar á því hér með, nefni engin nöfn svo sem í því samhengi.
Hlutirnir eru ekki að ganga eins og ég vildi að þeir væru að gera, tekur allt svo hrikalega langan tíma hérna úti í Norge,
Ég held að mér hafi tekist að móðga ótrúlega stóran hóp af fólki sem hagar sér eins og ég veit ekki hvað í garð fjölskyldunnar og Sæunnar kannski hvað mest, hún á ekki að líða fyrir það greyið að vera ekki jafn vel gift og ég er giftur, en þetta svo sem sýnir bara kannski hvar maður hefur fólk virðist vera orðið svo að ég móðgi mann og annan bara með það eitt að commenta hjá því á facebook, og já ég tók af öll comment og veggskrif hjá mér, þannig engin getur skrifað hjá mér, bara svo fólk fari nú ekki að væla að ég sé búinn að blokka úti einhvern einn aðila.